LÍM
Valmynd
Nýjast á vefnum
4 maí 2010
Númerplötur
Íslensk lög og reglugerðir
Ýmsar erlendar lög og reglur
Góðar fréttir
Með rísandi sól
14 janúar 2010
Er Hlífðarfatnaðurinn þinn CE merktur ?



4 maí 2010

Fundargerð LÍM

 

 

Verkefni:       Aðalfundur LÍM

                       

Efni fundar:   1. Kosning fundarstjóra

                    2. Kosning ritara

                    3. Efni síðustu fundargerðar

           4. Gagnaöflun vegna trygginga

             5. Komandi sumar

             6. Kostnaður í Hvalfjarðargöngin

             7. Upplýsingasamvinna

             8. Umræða um skipulag LÍM

             9. Kosning á nýjum aðalfundarstjóra og aðalritara

            10. Almenn samvinna allra klúbba

                   11. Annað

 

Dags. Fundar:  04.05.10

Tími: 20-22

Nr. Aðalfundar: 2

Fundarboðari:  Siggi Palli

Fundarritari: HJjr

Staður:  Sólon – efri hæð

 

Viðstaddir: 17 fulltrúar fullgildra mótorhjólaklúbba

Boðuðu forföll: Engir

Fjarverandi en boðaðir: Þeir sem ekki komu!

Afrit sent: í tölvupósti til formanna

 

Efni: Halli i Ducati og Siggi Palli í Hröfnum buðu formenn og forseta klúbba velkomna

 

1. Kosning fundarstjóra

Fundarmenn:

Skikkuðu Halla til að vera fundarstjóra!

 

2. Kosning fundarritara.

Fundarmenn:

Skikkuðu Doktorinn til að vera fundarritara!

 

3. Efni síðustu fundargerðar

Fundarmenn:

Það var engin fundargerð kynnt og enginn kom með athugasemdir við þennan lið!

 

4. Gagnaöflun vegna trygginga

Fundarmenn:

Ekki rætt!

 

5. Komandi sumar

Fundarmenn:

Ekki rætt!

 

6. Kostnaður í Hvalfjarðargöngin

Fundarmenn:

Ekki rætt!

 

7. Upplýsingasamvinna

Fundarmenn:

Ekki rætt!

 

8. Umræða um skipulag LÍM

Fundarmenn:

Ekki rætt!

 

9. Kosning á nýjum aðalfundarstjóra og aðalritara

Fundarmenn:

Atli í Ruddum samróma samþykktur sem aðalfundarstjóri og Hrabba í Grindjánum samróma samþykkt sem aðalritari. Halla og Sigga Palla hér með þökkum frábær brautryðjendastörf.

 

10. Almenn samvinna allra klúbba

Fundarmenn:

1.      Neddi, Frikki og Njáll vöktu athygli á nýrri stjórn og markmiðum Snigla

2.      Sniglar (Bifhjólasamtök Lýðveldisins) voru einu sinni þekktir fyrir að vera hagsmunasamtök bifhjólamanna, en síðan fóru hlutir úr böndunum, m.a. varðandi mismunandi hagsmuni annarra tegunda bifhjóla (mótorkross) og umræðu um öryggis- og hlífðarfatnað. Fundarmenn mishrifnir af því að einn klúbbur eigi að hafa afskipti af hagsmunum annarra en sinna eigin. Nýja stjórnin óskar eftir nýrri samvinnu við klúbba á nýjum forsendum. Uppástunga að hver klúbbur borgi 2000kr til þess að efla Snigla á þessum grundvelli.

3.      Allir klúbbar sendi LÍM upplýsingar um “viðburði sumarsins”(ekki félagsfundi) til að safna þeim á eitt “Viðburðardagatal”!

4.      Fyrirspurn um leyfi til að hafa númeraplötuna út á hlið. Það er bannað með lögum! Það má hins vegar hafa svarta númeraplötu á “fornhjóli”!

5.      Halli vakti athygli á að Torfi Hjálmarsson tæki sitt sæti í Ducati klúbbnum

6.      Kveldúlfar óska eftir inngöngu í LÍM. Fulltrúi þeirra, Renzo bent á að sækja um inngöngu

 

11. Annað.

 11 – 1: Öryggis- og hlífðarfatnaður, lágmarksaldur ökumanns og lágmarkshæð farþega.

Vakin var athygli á því að ný umferðarlög væru nú til lokaumræðu hjá samgöngunefnd og við þyrftum að hafa hraðann á til draga athygli nefndarmanna á fyrri athugasemdum okkar, hvað varðaði .

Frikki lagði fram eftirfarandi yfirlýsingu frá LÍM til að fara til nefndarinnar sem fyrst:

Aðalfundur Landssambands Íslenskra Mótorhjólaklúbba, krefst þess að ákvæði sem varða mótorhjólamenn, í drögum að nýjum umferðalögum sem nú liggja fyrir samgöngunefmd Alþingis, verði samræmd lögum og reglum sem alment eru í Evrópu. Meðfylgjandi eru gögn varðandi þá vinnu sem lögð hefur verið fram á vegum Snigla og fleiri mótorhjólamanna”.

 

Þá kom Njáll með eftirfarandi úrdráttur um hvað sé á ferðinni varðandi réttindi og lágmarkshæð fyrir farþega.

“Samkvæmt nýju lögunum mun lágmarksaldur fyrir almenn mótorhjólaréttindi (A2) færast úr 17 ára í 20 ára eða um þrjú ár. Skellinöðrupróf (M-réttindi) má taka 15 ára en munu færast upp í 16 ár samkvæmt nýju umferðarlögunum. Næsti réttindaflokkur á eftir því eru A1 réttindi sem gilda fyrir 125 rsm hjól sem eru 15 hestöfl að hámarki. Þetta eru ný réttindi í íslenskum lögum en hafa verið lengi við lýði í flestum Evrópulöndum, þar sem að flest þeirra miða við 16 ára lágmarksaldur. Einhverra hluta vegna er það þannig í lögunum að miðað verður við 18 ár á Íslandi sem hefur þau áhrif að næstu réttindaflokkar færast til sem því nemur. Þess vegna mun svokallað minnapróf fyrir mótorhjól (A2) færast upp í 20 ára og full réttindi (A) í 22 ára hið fyrsta. Vegna stigskiptingarinnar getur sá sem er yngri en 24 ára aldrei fengið full réttindi strax og verður því að byrja á minnaprófi. Það er ekki fyrr en fólk er orðið 24 ára að það getur tekið full réttindi strax á mótorhjól, en nú er sá viðmiðunaraldur 21 árs.

Annað dæmi um breytingu á umferðarlögum er að nú mun það verða ólöglegt að reiða þá sem eru undir 150 sm á hæð. Eini svokallaði rökstuðningurinn með þessari breytingu er sá að þetta sé til samræmis við lágmarkshæð vegna verndarbúnað í bifreiðum, samanber öryggispúða”.

 

Fundarmenn:

Í framhaldinu var skipuð nefnd (Atli Ruddum, Baddi Óskabörn Óðins, Doxi Trúboðum, Frikki Dúllurum, Neddi Sniglum og Ívar Örn HOG) til að komast á fund nefndarinnar. Ívar Örn hringdi í einn meðlima nefndarinnar sem hvatti okkur til að ná sambandi við Ólínu Þorvarðardóttur sem fyrst. Doxi þekkir hana og tók að sér að ná sambandi .Neddi ætlar að taka fram fyrri bréf til nefndarinnar til að fríska upp á minnið. Bent á (Renzo) að Félag framhaldsskólanema ætti að koma að aldursumræðunni.

 

 

Verkefni ákveðin á fundinum: sjá nánar í fundargerð, sérstaklega lið 11 – 1!

 

 

Næsti fundur: ekki ákveðinn; verður boðaður sérstaklega!



  Þessi vefur keyrir á vefumsjónarkerfi frá Xodus.is