14. 12. 93 Stjórnartíðindi EB Nr. L 311/83
TILSKIPUN RÁÐSINS 93/94/EBE frá 29. október 1993 um flöt fyrir aftara skráningarmerki á vélknúnum ökutækjum sem eru á tveimur eða þremur hjólum
RÁÐ EVRÓPUBANDALAGANNA HEFUR, með hliðsjón af stofnsáttmála Efnahagsbandalags Evrópu, einkum 100. gr. a, með hliðsjón af tilskipun ráðsins 92/61/EBE frá 30. júní 1992 varðandi gerðarviðurkenningu vélknúinna ökutækja sem eru á tveimur eða þremur hjólum (1), með hliðsjón af tillögu framkvæmdastjórnarinnar (2), í samvinnu við Evrópuþingið (3), með hliðsjón af áliti efnahags- og félagsmálanefndarinnar (4), og að teknu tilliti til eftirfarandi: Innri markaðurinn myndar svæði án innri landamæra þar sem frjálsir vöruflutningar, fólksflutningar, þjónustustarfsemi og fjármagnsflutningar eru tryggðir. Samþykkja þarf ráðstafanir sem eru nauðsynlegar í þeim tilgangi. Með tilliti til flatar fyrir aftara skráningarmerki, verður, í hverju aðildarríki, að sýna fram á að vélknúin ökutæki á tveimur eða þremur hjólum hafi ákveðna tæknieiginleika sem mælt er fyrir um í lögboðnum ákvæðum sem eru mismunandi
frá einu aðildarríki til annars. Vegna þessa mismunar leiða ákvæðin til viðskiptahindrana innan bandalagsins. Þessum hindrunum á starfsemi hins innri markaðar er hægt að ryðja úr vegi ef öll aðildarríkin samþykkja sömu kröfurnar í stað innlendra reglna.
Nauðsynlegt er að gera samhæfðar kröfur varðandi flöt fyrir aftara skráningarmerki vélknúinna ökutækja sem eru á tveimur eða þremur hjólum til þess að þær aðferðir við gerðarviðurkenningu og gerðarviðurkenningu íhluta sem mælt var fyrir um í tilskipun 92/61/EBE geti átt við allar gerðir slíkra ökutækja.
Markmið þessarar tilskipunar er ekki að samræma stærð skráningarmerkja sem notuð eru í aðildarríkjunum. Aðildarríkin ættu því að tryggja að skráningarmerki sem skaga út (1) Stjtíð. EB nr. L 225, 10. 8. 1992, bls. 72. (2) Stjtíð. EB nr. C 293, 9. 11. 1992, bls. 38.
(3) Stjtíð. EB nr. C 337, 21. 12. 1992, bls. 104 og ákvörðun frá 27. október 1993 (hefur enn ekki verið birt í Stjórnartíðindum EB).
(4) Stjtíð. EB nr. C 73, 15. 3. 1993, bls. 22. skapi ekki hættu fyrir notendur, án þess þó að þetta krefjist einhverra breytinga með tilliti til smíði ökutækisins. Með hliðsjón af umfangi og áhrifum fyrirhugaðra aðgerða á því sviði sem um ræðir eru ráðstafanir bandalagsins sem falla undir þessa tilskipun nauðsynlegar og beinlínis óhjákvæmilegar svo hægt sé að ná fram settum markmiðum,
sem er að koma á gerðarviðurkenningu fyrir ökutæki á vettvangi bandalagsins. Aðildarríkin geta ekki náð markmiðunum hvert fyrir sig.
SAMÞYKKT TILSKIPUN ÞESSA:
1. gr.
Tilskipun þessi, ásamt viðauka hennar, gildir um flöt fyrir aftara skráningarmerki allra ökutækja sem skilgreind eru í 1. gr. tilskipunar 92/61/EBE.
2. gr.
Aðferðin við að veita gerðarviðurkenningu íhluta varðandi flöt fyrir aftara skráningarmerki á ökutækjum sem eru á tveimur eða þremur hjólum og skilyrði fyrir frjálsum flutningum slíkra ökutækja skulu vera eins og mælt er fyrir um í II. og III. kafla tilskipunar 92/61/EBE.
3. gr.
Allar breytingar sem nauðsynlegar eru til þess að laga kröfur viðaukanna að tækniframförum skal samþykkja samkvæmt þeirri málsmeðferð semmælt er fyrir um í 13. gr. tilskipunar ráðsins 70/156/EBE (5).
4. gr.
1. Aðildarríkin skulu samþykkja og birta nauðsynleg ákvæði til að fara að tilskipun þessari fyrir 1. maí 1995. Þau skulu tilkynna það framkvæmdastjórninni þegar í stað. (5) Stjtíð. EB nr. L 42, 23. 2. 1970, bls. 1. Tilskipuninni var síðast breytt með tilskipun 92/53/EBE (Stjtíð. EB nr. L 225, 10. 8. 1992, bls. 1). Nr. L 311/84 Stjórnartíðindi EB 14. 12. 93 Þegar aðildarríkin samþykkja þessi ákvæði skal vera í þeim tilvísun í þessa tilskipun eða þeim fylgja slík tilvísun þegar þau verða birt opinberlega. Aðildarríkin skulu setja nánari
reglur um slíka tilvísun. Frá þeim degi sem um getur í fyrstu undirgrein mega aðildarríkin ekki, af ástæðum er varða flöt fyrir aftara skráningarmerki, banna að ökutæki sem eru í samræmi við þessa tilskipun séu tekin í notkun í fyrsta sinn. Þau skulu beita ákvæðunum sem um getur í fyrstu undirgrein frá og með 1. nóvember 1995. 2. Aðildarríkin skulu senda framkvæmdastjórninni helstu ákvæði úr landslögum sem samþykkt verða um málefni sem tilskipun þessi nær til.
5. gr.
Tilskipun þessari er beint til aðildarríkjanna. Gjört í Brussel 29. október 1993. Fyrir hönd ráðsins, R. URBAIN forseti. 14. 12. 93 Stjórnartíðindi EB Nr. L 311/85
VIÐAUKI
1. MÁL
Mál flatar fyrir aftara skráningarmerki á ökutækjum sem eru á tveimur eða þremur hjólum (1) eru
eftirfarandi:
1.1. Bifhjól með hjálparvél og létt fjórhjól
1.1.1. Breidd: 100 mm;
1.1.2. Hæð: 175 mm;
eða
1.1.3. Breidd: 145 mm;
1.1.4. Hæð: 125 mm.
1.2. Bifhjól, þríhjól upp að 15 kW hámarksafli og fjórhjól önnur en létt fjórhjól:
1.2.1. Breidd: 280 mm;
1.2.2. Hæð: 210 mm.
1.3. Þríhjól með hámarksafl yfir 15 kW:
1.3.1. Ákvæðin um fólksbifreiðar sem sett eru í tilskipun 70/222/EBE skulu gilda.
2. ALMENN STAÐSETNING
2.1. Flötur fyrir aftara skráningarmerki á bifhjólum, bifhjólum ásamt aukabúnaði (t.d. hliðarvagni) eða þríhjólum skal staðsettur aftan á ökutækinu þannig að:
2.1.1. skráningarmerkið geti verið innan lengdarplana sem liggja í gegnum ystu punkta ökutækisins.
3. HALLI
3.1. Aftara skráningarmerki:
3.1.1. skal vera hornrétt á lengdarmiðjuplan ökutækisins;
3.1.2. má ekki hallast meira frá lóðréttu plani en 30 þegar plata með skráningarnúmerinu hallast upp á við.
3.1.3. má ekki hallast meira en 15 frá lóðréttu plani þegar plata skráningarnúmerinu hallast niður á við.
4. HÁMARKSHÆÐ
4.1. Enginn punktur á fleti fyrir aftari skráningarmerki má vera meira en 1,5 m fyrir ofan jörðu þegar ökutækið er með hleðslu (tilbúið til aksturs ásamt 75 kg massa).
5. LÁGMARKSHÆÐ
5.1. Enginn punktur á fleti fyrir aftari skráningarmerki má vera minna en 0,20 m fyrir ofan jörðu, eða minna en sem nemur radíus hjóla fyrir ofan jörðu ef hann er minni en 0,20 m, þegar ökutækið er með hleðslu (tilbúið til aksturs ásamt 75 kg massa).
(1) Á bifhjólum með hjálparvél getur þetta verið hvaða skráningar- og eða auðkennismerki sem er.
Nr. L 311/86 Stjórnartíðindi EB 14. 12. 93
6. RÚMFRÆÐILEGUR SÝNILEIKI
6.1. Flöturinn fyrir merkið skal vera sýnilegur innan rýmis sem afmarkast af tveimur sléttum flötum sem skerast: öðrum með láréttri brún sem afmarkast af tveimur plönum sem liggja í gegnum efri og neðri láréttar brúnir flatarins fyrir skráningarmerkið, en hornin eru sýnd á mynd 1 miðað við
lárétt; hinum með merkjanlegri lóðréttri brún sem afmarkast af tveimur plönum sem liggja sitt í gegnum hvora hlið skráningarmerkisins, en hornin eru sýnd á mynd 2 miðað við lengdarmiðjuplan ökutækisins.
Mynd 1
Horn rúmfræðilegs sýnileika (sléttir fletir sem skerast með láréttri brún)

Mynd 2
Horn rúmfræðilegs sýnileika (sléttir fletir sem skerast með merkjanlegri lóðréttri brún)
14. 12. 93 Stjórnartíðindi EB Nr. L 311/87
1. viðbætir
Upplýsingaskjal varðandi flöt fyrir aftara skráningarmerki á gerð vélknúinna ökutækja sem eru á
tveimur eða þremur hjólum
(skal fylgja með umsókn um gerðarviðurkenningu íhluta ef hún er ekki lögð fram á sama tíma og umsókn um
gerðarviðurkenningu á ökutækinu)
Pöntun nr. (undirrituð af umsækjanda)
Með umsókn um gerðarviðurkenningu íhluta með tilliti til flatar fyrir aftara skráningarmerki á gerð vélknúinna
ökutækja sem eru á tveimur eða þremur hjólum skulu fylgja upplýsingarnar sem um getur í II. viðauka við
tilskipun ráðsins 92/61/EBE:
—í A-hluta, liðir:
— 0.1,
— 0.2,
— 0.4 til 0.6,
— 2.2,
— 2.1.1,
—í B-hluta, liðir 1.2, 1.2.1 og
—í C-hluta, liðir 2.11 og 2.11.1.
Nr. L 311/88 Stjórnartíðindi EB 14. 12. 93
2. viðbætir
Heiti yfirvalds
Gerðarviðurkenningarvottorð íhluta varðandi flöt fyrir aftara skráningarmerki á gerð vélknúinna
ökutækja sem eru á tveimur eða þremur hjólum