Lím fundur haldinn í húsnæði hjól.is fimmtudaginn 14.janúar 2010 kl.20:00
Mættir voru fulltrúar Rafta,Grindjána,Slóðavina,VS,Trúboða,Snigla,Höfðingja,Skugga,Rudda,Jötna,Ducati klúbbsins,BMW og Skutla.
Fundarefni:
1. Staða mála sem voru í vinnslu í haust, s.s. breytingar á lögum sem snúa að mótorhjólum, þekking sölumanna á hjálmum, nýja lógó LÍM, gjöld í hvalfjarðargöngin, verðgjald hjá tryggingafélögunum, o.fl.
2. Hvernig staðið skal að kosningum viðkvæmra mála.
3. Dagatal LÍM með viðburðum einstakra klúbba.
4. Viðburðir og baráttumál komandi árs.
4. Önnur mál.
Halli setti fundinn og byrjað var á að ræða tillögu sem Hjörtur Líklegur var búinn að senda fundarmönnum í sambandi við hvort gefa ætti út hjólablað, Hjörtur kynnti kostnað við útgáfuna, skoða þarf málið betur m.t.t. tímarits eða vera með kálf inni í Fréttablaðinu. Hjörtur ætlar að kanna málið betur.
Þórdís meistaranemi í verkefnastjórnun við HÍ kynnti fyrir fundarmönnum lokaverkefni sem hún er að vinna að en það stendur til að skoða bifhjólavettvanginn og ætlar hún að senda bifhjólafólki af handahófi spurningar sem þeir eru beðnir um að svara. Þórdís biður forsvarsmenn klúbbana um að tala sínu máli og kynna verkefnið fyrir sínu fólki til þess að hægt verði að fá marktæka niðurstöðu.
Baldur kynnti nýtt nafn á klúbbnum sínum en það er Höfðingjar MC.
Óli Snigill er að vinna í gangnamálum.
Ekkert hefur gerst í Tryggingamálum.
Njáll kynnti hvar hlífðafatafrumvarpið er statt, komin eru drög að niðurfellingu á skyldu hjólamanna til þess að aka í viðurkenndum hlífðarfatnaði nema þeir sem hafa atvinnu að akstri vélhjóla.
Rætt var um hvernig standa skuli að kosningu á viðkvæmum málum, það var nokkuð samróma álit fundarmanna að hafa skyldi kosningu leynilega þegar kemur að slíkum málum.
Klúbbar eru kvattir til að senda Atla Rudda dagskránna sína fyrir sumarið þ.e. atburði þar sem allt hjólafólk er velkomið að taka þátt.
Blaðamálið var rætt aftur í lok fundar og þá sagði Ásta Ruddi frá því að hugsanlega væri hægt að sækja styrk til útgáfunnar, Hjörtur ætlar að kanna það mál.
Atli stakk upp á því að við myndum sameinast um að panta dekk frá USA, Baldur ætlar að kanna málið og Íris athugar með Sólningu.