
Samkvæmt drögum að nýjum umferðarlögum er verið að skylda mótorhjólfólk á Íslandi til að nota staðlaðan hlífðarfatnað.
Þarf allur gallinn þá að vera með CE merkingum sem þýðir einfaldlega að hann standist ákveðnar gerðir prófana, ef framleiðandi vill merkja hann þannig.
Þetta eru Evrópureglur þannig að gallar framleiddir fyrir önnur markaðssvæði eru oftar en ekki án CE merkinga.
Á Íslandi er löng og góð hefð fyrir notkun hlífðarfatnaðar og er Ísland líklega síðasta landið sem að þarf á slíkum lögum að halda. Norðmenn settu á svona lög fyrir nokkrum árum en drógu svo þá lagasetningu til baka þar sem að hún var talin ganga of langt.
Íslenskt hjólafólk er á sama máli, og hafa Sniglar með stuðningi LÍM mótmælt þessari lagasetningu og lagt til að hún verði einskorðuð við þá sem hafa mótorhjól að atvinnu.
Hjólafólk.is er að kanna hvernig galla fólk á hérlendis og hvort hann sé yfir höfuð CE merktur. Viljum við því biðja ykkur ágæta hjólafólk að taka þátt í þessari könnun til að hjálpa okkur í baráttunni. Við viljum semsagt að þú skoðir gallann þinn og sjáir hvort að hann sé með CE merkingum og hvort að einstakir hlutar hans innihaldi eftirfarandi staðla:
Hjálmar – ECE 22.05
Stígvél – CE EN 13634
Jakka og buxur – CE EN 13595
Hlífar – CE EN 1621
Hanskar – CE EN 13594
Gleraugu – CE EN 1938
Til að skoða hlífarnar gætir þú þurft að taka þær úr gallanum en staðallinn á að vera þrykktur í efnið. Á hjálminum er merkingin annað hvort aftan á eða á miðanum inni í hjálminum, sem og á öðrum hlutum. Þessi könnun gæti gagnast vel og mikilvægt að em flestir taki þátt og á sem skemmstum tíma. Taktu þátt. Hjólafólk á Íslandi notar hlífðarfatnað. Þess vegna þarf ekki að setja það í lög!
Tengillinn í könnunina er:
http://www.hjolafolk.is/index.php?option=com_surveys&Itemid=&act=view_survey&survey=CE%20Merkingar